Hefurðu gaman að því að prjóna og kynnast siðum og menningu í öðrum löndum? Elskarðu að læra nýjar aðferðir og tækni? Viltu verja tíma með fólki með sama áhugamál? Þá er þessi ferð mögulega draumaferðin þín.
Fararstjóri er Dagný Hermannsdóttir.
Hún er handavinnukennari að mennt, forfallin handavinnukona og hefur séð um fararstjórn í prjónaferðunum við góðan orðstýr.
Ferðatímabil: 5. – 12. ágúst 2024
Verð: 415.000 kr./mann miðað við tvo í herbergi.
Snemmskráningarafsláttur: 10.000 kr. (sé bókað fyrir 25. apríl 2024)
Aukagjald fyrir einbýli: 45.000 kr.
Staðfestingargjald: 83.000 kr. (óafturkræft nema ferð falli niður)
Fjöldi farþega: lágmark 18 – hámark 24
Eftirstöðvar greiðast 6 vikum fyrir brottför
Upplýsingar gefur Erlendur í s. 5614646 netfang: mundo@mundo.is
Í Lettlandi sköpuðust einstakar hefðir í vettlingaprjóni. Hefðin var að ungar stúlkur prjónuðu fjöldan allan af vettlingum og söfnuðu í kistil til að eiga áður en þær gengu í hjónaband. Konur lögðu gríðarlegan metnað í að hanna mynstur og að prjóna einstaka vettlinga og munstrin voru fjölbreytt og full af táknum. Hefðin var að brúðurin færði brúðgumanum og fjölskyldu hans, presti og þeim sem höfðu hlutverk í athöfninni eða veislunni vettlinga við giftingu. Vettlingar tengdust einnig alls kyns hjátrú og siðum og mismunandi hefðir sköpuðust milli héraða. Vettlingar urðu líka að nokkurs konar gjaldmiðli og voru mikils metnir og gjarna notaðir sem greiðsla fyrir hitt og þetta. Skrautlegir vettlingar voru gjarna hengdir við belti sem skraut og eru mikilvægur hluti af þjóðbúningahefðum Letta. Í Lettlandi hafa því varðveist ótrúlega fjölbreytt og mörg vettlingamunstur. Enn í dag eru vettlingar mikils metnir í Lettlandi og áhersla lögð á að halda þekkingunni við og víða eru starfandi prjónahópar þar sem prjónarar geta lært hver af öðrum.
Í þessari ferð förum við í ævintýralega prjóna- og menningarreisu. Sitjum námskeið á ýmsum stöðum svo sem söfnum, byggðasöfnum, menningarsetrum, handverkshúsum og víðar, lærum af lettneskum prjónakonum, fáum kynningar á siðum, söngvum, menningu og þjóðbúningum auk þess að smakka þjóðlegan mat og mun allt þetta gefa okkur innsýn inn í lettneska menningu. Heimsækjum handverkshús og vinnustofur listamanna og víða gefst tækifæri til að kaupa prjónavörur og annað vandað handverk beint frá handverksfólkinu sjálfu. Ferðirnar eru unnar í samstarfi við þjóðbúningamiðstöðina Sena Klets í Riga en stofnandi hennar er Maruta Grasmane höfundur ,,Mittens of Latvia“. Verkefnastýra Sena Klets, Ziedite Muzis er með okkur stóran hluta ferðarinnar en hún er sérfræðingur í öllu sem viðkemur lettneskum þjóðbúningum og handverki tengdu þeim. Hótelin eru ekki af verri endanum en bæði í Liepaja og Riga gistum við á nýuppgerðum hótelum í gömlum og fallegum byggingum.
Stærstan hluta ferðarinnar gistum við í indælum strandbæ sem heitir Liepaja og er í Kurzeme héraði, en þaðan eru varðveittir hvað flestir og skrautlegastir vettlingar. Tvo daga sækjum við námskeið í Liepaja en aðra tvo daga förum við með rútu út fyrir bæinn og prjónum á mismunandi stöðum. Í lok ferðarinnar höldum við til Riga þar sem boðið er upp á heimsóknir í helstu og skemmtilegustu garn og prjónabúðir í Riga auk prjónanámskeiðs í þjóðbúningamiðstöðinni Sena Klets. Það verður gert vel við okkur í mat og er hann innifalinn í verði utan tveggja hádegisverða og eins kvöldverðar í Riga.
Flogið til Riga kl. 12:25 og lending kl. 19.05 að staðartíma. Rútuferð á Art Hotel Roma í Liepāja. Kvöldsnarl í rútunni og áætlaður komutími 22:15
Kl. 09:00 Gengið frá hóteli að handverksmiðstöðinni í Kungu stræti.
Vinnustofa: „Fléttuprjón og nálar“ leiðbeinandi er Rita Pogoska
Kl. 11:00 Kaffipása undir tónum þjóðlagasveitarinnar Atštaukas
Kl. 13:30 Hádegisverður
Kl. 14:30 Heimsókn í list- og handverksmiðstöðina Art & Craft Center „Dārza iela“
Kl. 15:30 Frjáls tími: hægt að kíkja á ströndina, fara í búðir eða gallerý, rölta um bæinn eða prjóna.
Kl. 19:30 Kvöldverður á veitingastað hótelsins, Rosemary
Kl. 9:30 Gengið frá hóteli til Liepāja safnsins en þar verður vinnustofa dagsins. Einnig skoðum við sýningu um lettneska þjóðhætti, meðal annars myndarlegt safn af gömlum vettlingum.
Vinnustofa: „Fringes“ (kögur o.fl.). Leiðbeinandi: Sandra Brüna.
Stutt kynning á sokkabókinni „Suiti patterned socks“ eftir Lia Mona Ģibiete.
Kl. 14:00 Hádegisverður á veitingastaðnum Big Amber
Frjáls tími eða farið með fararstjóra í garnbúð í nágrenninu. Þar býðst okkur 10% afsláttur af öllu garni.
Frjáls tími
Kl. 19.30 Kvöldverður á veitingastaðnum Hojere House
Kl 9:00 Rútuferð til Rucava.
Vinnustofa: „Rucava skeljakanntur“. Leiðbeinendur: Dace Liparte.
Kl. 14:00 Hádegisverður í „Zvanītāji“ sem er nokkurskonar lifandi sögusafn. Sandra Aigare kynnir safnið fyrir hópnum. Þar er einnig hægt að kaupa vettlinga sem meðlimir í handverkshóps staðarins hafa prjónað.
Þátttakendur fá með sér garn og uppskrift fyrir heimavinnu (litríkir vettlingar í fallegum áprentuðum taupoka frá SENĀ KLĒTS)
Frjáls tími, hægt að fara á ströndina eða kíkja í búðir og gallerý eða slaka á og prjóna meira.
Kl. 19.30 Kvöldverður á veitingastaðnum Piano
Kl. 9:00 Tékkað út af hóteli og haldið til Kuldiga sem er fallegur miðaldabær og á heimsminjaskrá UNESCO. Gengið gegnum bæinn á leið í vinnustofu dagsins.
Vinnustofa á bókasafni Kuldiga með handverksfólki frá listastúdíóinu „Čaupas“.
Kl. 14:00 Hádegisverður á veitingastaðnum Bangerts
Kl. 16:00 Brottför frá Kuldiga til Riga en þar verður gist á Rixwell Konventa Sēta, fjögurra stjörnu hóteli í gamla miðbænum. Áætlaður komutími til Riga 18:00
Frjáls tími í Riga
09:00 Við byrjum daginn á að rölta í Senā Klēts en það er þjóðbúningastofa Letta og þar er gullfalleg verslun með vettlingum og öðru handverki er tengist þjóðbúningahefðum. Þar fáum við kynningu á starfsemi Senā Klēts sem var stofnuð af Maruta Grasmane, höfundi bókarinnar Mittens of Latvia (Þátttakendur á námskeiðinu fá bókina á sérstökum afslætti og einnig afslátt í versluninni). Utan þess er frjáls dagur í Riga og mun Dagný fara með áhugasama prjónara í helstu prjóna- og handverksbúðirnar í nágrenninu. Meðal þeirra verslana sem verða heimsóttar er hin skemmtilega HobbyWool en Eigandi hennar er Ieva Ozolina en hún er höfundur bókanna „Knit like a Latvian“. Hún býður okkur 15% afslátt en í búðinni má t.d. fá garn í vettlinga og tilbúna prjónapakka með uppskrift og garni
Við byrjum daginn aftur í Senā Klēts, en í þetta skiptið er boðið upp á prjónanámskeið þar. Við prjónum til um það bil til klukkan 13:00 og eftir það er frjáls timi fram að hátíðarkvöldverði á veitingastaðnum Gutenbergs en frá honum er frábært útsýni yfir borgina og alla fallegu turnana í nágrenninu (innifalið í verði ferðarinnar).
Heimfarardagur