Bóka/greiða staðfestingargjald
Staðfestingargjald er 46.000kr./mann
Framundan er prjóna- og matar helgi á Siglufirði þar við ætlum að njóta þess að prjóna með Dagnýju Hermannsdóttur, elda saman ljúffengan marokkóskan mat undir handleiðslu marokkóskra matreiðslumestara.
Njóttu þess að prjóna í góðum félagsskap á einhverjum fallegasta stað landsins meðfram námi í prjónalistinni.
Dagný Hermannsdóttir verður leiðbeininandi yfir helgina og hefur hún undanfarin ár farið með hópa fyrir Mundo til að kynnast prjónahefðum í Lettlandi.
Hópurinn gistir á hinu margrómaða boutique hóteli, Hótel Siglunesi, þar sem húsgögnin eru frá blómaskeiði fjarðarins. Veitingastaðurinn á hótelinu er orðinn landsfrægur fyrir stórkostlega Marokkóska rétti og á sumrin eru margra vikna biðlistar til að upplifa þessa einstöku matarhefð. Við ætlum að taka þetta aðeins lengra og bjóða hópnum að elda með meistarakokkum Sigluness og að útbúa með þeim marokkóska veislu í nýju kennslueldhúsi á hótelinu.
Þá verður boðið upp á heimsókn á Síldarminjasafnið undir leiðsögn heimamanns og gönguferð um bæinn þar sem sagðar verða sögur frá síldinni og lífinu í bænum. Um ræðir blöndu af menntun og skemmtun sem verður skreytt af menningu og sögu Siglufjarðar
Fimmtudagurinn 9. maí.
Hægt er að tékka inn á hótelið kl 15:00
Kl. 19:00 safnast hópur saman í anddyri hótels og er boðinn velkominn – sagt er frá námskeiðinu, hvar helstu hluti er að finna á Sigló o.s.frv. Að því loknu er tveggja rétta kvöldverður að Marokóskum sið.
Að loknum kvölverði verður spjall og notaleg prjónasamvera
Föstudagurinn 10. maí
Kl. 09:00 Eftir góðan morgunverð eru prjónarnir teknir upp. Örnámskeið í lettneskum prjónaaðferðum og skemmtilegum prjónatrixum í boði en auðvitað er þátttakendum frjálst að vinna í öðrum verkefnum kjósi þeir það heldur.
Kl 12:00 Hádegisverður á hótelinu
Kl 13:00 Létt ganga um bæinn áður en við tökum aftur til við að prjóna. Höfum það huggulegt yfir prjónunum, spjöllum og sprellum etv dálítið
Kl 15:00 Kaffi og kruðerí og prjónabingó með skemmtilegum vinningum
Á hótelinu er heitur pottur þar sem dásamlegt er að láta líða úr sér ef við fáum af okkur að leggja frá okkur prjónana.
Kl 19:00 Tvíréttaður marokkóskur kvöldverður
Laugardagurinn 11. maí
Kl. 09:00 Eftir góðan morgunverð eru prjónarnir teknir upp. Örnámskeið í lettneskum prjónaaðferðum og skemmtilegum prjónatrixum í boði en auðvitað er þátttakendum einnig frjálst að vinna í öðrum verkefnum
Kl. 12:00 léttur hádegisverður og strax að honum loknum er farið í gönguferð um Siglufjarðarbæ undir leiðsögn heimamanns, kíkt á Síldarminjasafnið o.fl.
kl: 15:00 eru prjónarnir teknir upp aftur yfir kaffi og dálitlu meðlæti.
Kl: 18:00 hittist hópurinn í nýju kennslueldhúsi hótelsins og slær upp dýrindis marokkóskri veislu. Kennd verða grunnatriði í marokkóskri matargerð. Við njótum fram eftir kvöldi.
Sunnudagurinn 12. maí
09:30 hittist hópurinn eftir morgunverð og tekur upp prjónana áfram undir handleiðslu Dagnýjar og nýtur hópurinn samverunnar til kl 14:00 með stuttu hádegishléi þangað til að tími er kominn til að huga að heimferð.