Hefurðu hugsað um að lofa unglingnum á heimilinu að fara í skiptinám en hikar svo þegar kemur að óvissuþáttunum og þeirri staðreynd hvað heimurinn er stór og hversu margt gæti komið uppá? MUNDO þekkir þá tilfinningu og ákvað þess vegna að bjóða upp á skiptinám í mjög öruggu umhverfi þar sem Mundo þekkir afar vel til og getur gripið inní hvenær sem er. Eigandi Mundo er fyrrum vararæðismaður Spánar, höfundur spænsk-íslensk-spænsku orðabókarinnar og með sambönd sem tryggja skiptinám eins og það gerist best. Foreldrar frá reglulegar fréttir frá fyrstu hendi án menningar og tungumálaörðugleika.
Mundo stendur fyrir eigin skiptinámi í samstarfi við Evu Arenales sem er eigandi Mundo á Spáni og hefur unnið með Mundo frá upphafi. Hún er sú sem heldur utan um sumarbúðir Mundo á Spáni og hefur sjálf oft komið til Íslands. Eva hefur góðar tengingar á Spáni og finnur bestu fjölskyldurnar sem passa skiptinemum Mundo.
Spænska er töluð í yfir tuttugu löndum og eykst mikilvægi hennar með ári hverju. Því er spænskuþekking ungmenna fjársjóður sem endist og er gagnleg til að ferðast til Rómönsku Ameríku, Bandaríkjanna og Afríku. Mundo mælir hins vegar með því að senda ungmennin til Spánar á meðan þau eru enn svona ung. Nægur er menningarmunurinn samt.
Skiptinám getur verið stórkostleg reynsla sem hjálpar ungmennum að vaxa undurhratt á skömmum tíma auk þess að ná góðum tökum á nýju tungumáli. Rannsóknir sýna að þau ungmenni sem fara út sem skiptinemar búa að því alla ævi.
Mundo heldur sérlega vel utan um skiptinemana á Spáni og kemur eigandi Mundo út í febrúar á ári hverju, leigir hús fyrir krakkana eina helgi og tekur púlsinn. Þar að auki er starfsmaður Mundo ávallt á línunni reiðubúinn til að styðja við krakkana í nýjum og krefjandi aðstæðum.
Skiptinámið er fyrir 14-18 ára krakka (miðað við aldurinn þegar lagt er af stað í skiptinámið) og geta þau valið á milli þess að dvelja þar eina önn eða heilt skólaár. Dvalið er hjá vel völdum fjölskyldum víðsvegar um Spán og nærri þeim öllum býr fulltrúi MUNDO sem hefur valið fjölskyldurnar og fylgist með allan tímann.
Rannsóknir sýna að best er að dvelja heilt skólaár því fyrstu mánuðirnir fara í aðlögun og hæpið er að ná tungumáli mjög vel á skemmri tíma.
Fjölskyldurnar sem dvalið er hjá eiga það sameiginlegt að vilja opna heimili sitt fyrir íslensku ungmenni. Sumar hafa alþjóðlega reynslu og skilning, aðrar hafa alist upp í tvítyngdu umhverfi og skilja fullvel hvað menningarmismunur og aðlögun eru. Enn aðrar vilja bjóða börnunum sínum upp á nýja lífsreynslu heima fyrir. Fjölskyldurnar sem við vinnum með eru af öllum stærðum og gerðum, stórar og smáar, barnlausar og barnmargar, þar sem eru giftir og ógiftir einstaklingar. Við vöndum okkur vel við að para saman ungmenni og fjölskyldu. Eigandi Mundo miðar ávallt við spurninguna: Vildi ég setja mitt barn til þeirra? Ef svarið er já þá samþykkjum við fjölskylduna.
Dvalið er hjá fjölskyldum um allan Spán. Krakkarnir sem halda út í september dvelja í Galisíu, Madrid, Extremadura og Andalúsíu.
Áður en ungmennin halda til fósturfjölskyldnanna fara þau á undirbúningsnámskeið á Spáni en vitaskuld fara þau einnig á undirbúningsnámskeið á Íslandi. Þau kynnast þannig hinum krökkunum sem eru í sama prógrammi.
1. Vera 14-18 ára þegar skiptinám hefst
2. Vera með lágmark 6,5 í meðaleinkunn í íslenskum skóla
3. Æskilegt er að vera með grunnþekkingu í spænsku en það er ekki nauðsynlegt. Mælt er með að hafa tekið spænsku í eitt ár eða hafa verið í sumarbúðum MUNDO. Ef ekki, þurfa verðandi skiptinemar að taka hraðnámskeið í spænsku fyrir brottför.
4. Hafa nægan þroska og sveigjanleika til að geta tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi.
5. Vera við góða heilsu andlega og líkamlega og laus við alvarlega námsörðugleika. Lesblinda flokkast ekki sem alvarlegir námsörðugleikar.
Einnar annar dvöl hefst í kringum 8. september og lýkur 18. desember eða þá að hún hefst 10. janúar og lýkur í júní, eftir því hvort farið er að hausti eða á vormisseri.
Ársdvöl hefst í september og lýkur í júní ef skiptinemi er skráður á fyrra ár stúdentsprófs. Þeir sem skráðir eru á síðara ár stúdentsprófs eru búnir í lok maí.
31. mars fyrir skiptinám sem hefst að hausti
15. október fyrir skiptinám sem hefst í janúar
hálft skólaár: 1.590.000
heilt skólaár: 2.090.000
Greiðslur fara fram með eftirfarandi hætti:
Umsóknargjald 150 þúsund er óafturkræft og greiðist við afhendingu umsóknar. Fari svo ólíklega að umsókninni verði hafnað úti þá endurgreiðum við 120 þúsund af því fé. 50% af gjaldinu greiðist 31. maí og afgangur þann 15. júlí. Fyrir brottför í janúar greiðist 50% fyrir 31. október og afgangur fyrir 15. desember.
Eigandi Mundo er Margrét Jónsdóttir Njarðvík en hún hefur áratuga langa reynslu af skiptinámi og skiptinemum, Spáni og Spánverjum, sendingu og móttöku af Spánverjum og talar spænsku eins og innfædd. Með skiptinámi á Spáni vinnum við með land sem er öruggt, fjölskyldur sem við þekkjum og með samstarfsaðilum sem við treystum.
Ef þér líst á það sem þú lest hér, þá er næsta skref að panta viðtal. Vinsamlegast hafið samband við Nönnu Hlíf í netfangi nannahlif@mundo.is, eða s. 8504684.