Löng hefð er fyrir þýskukennslu á Íslandi og hér er boðið upp á tækifæri til að ungmenni nái fullkomnu valdi á málinu og geti nýtt sér það að gagni í lífinu. Þýskukunnátta er fjársjóður sem endist í lífi og starfi og er gagnleg til að ferðast um Þýskaland, Austurríki og Sviss.
Mundo er í farsælu samstarfi við OPEN DOOR í Þýskalandi, traust samtök sem eru stór á markaði í Þýskalandi og fengu viðurkenningu sem farsælustu skiptinemasamtökin í Þýskalandi 2024
Skiptinámið er fyrir 14-18 ára krakka (miðað við aldurinn þegar lagt er af stað í skiptinámið) og geta þau valið á milli þess að dvelja þar í hálft skólaár eða 10 mánuði. Dvalið er hjá vel völdum fjölskyldum víðsvegar um Þýskaland og nærri þeim öllum býr fulltrúi OPEN DOOR sem hefur valið fjölskyldurnar og fylgist með allan tímann.
Við hvetjum ykkur til að hugsa sérstaklega um möguleikann á að taka tíunda bekk í Þýskalandi en einnig er hægt að taka fyrsta og annað ár í framhaldsskóla úti.
Fjölskyldurnar sem dvalið er hjá eiga það sameiginlegt að hafa alþjóðlega reynslu og skilning eða hafa alist upp í tvítyngdu umhverfi og skilja fullvel hvað menningarmismunur og aðlögun eru. Fjölskyldurnar sem við vinnum með eru af öllum stærðum og gerðum, stórar og smáar, barnlausar og barnmargar, þar sem eru giftir og ógiftir einstaklingar. Við vöndum okkur vel við að para saman ungmenni og fjölskyldu.
Dvalið er hjá fjölskyldum um allt Þýskaland.
Áður en ungmennin halda í skiptinám fara þau í undirbúningsviðtöl hjá Nönnu Hlíf hjá Mundo sem sér um skipulag og utanumhald frá umsóknaferli og allt þar til dvöl lýkur en einnig undirbúningsnámskeið við komu hjá trúnaðarmanni sínum í Þýskalandi.
1. Vera 14-17 ára þegar skiptinám hefst
2. Gott er að vera með einhvern grunn í þýsku.
3. Vera samviskusamur nemandi og námsferil sem gefur til kynna að skiptinám sé ekki hindrun.
4. Hafa nægan þroska og sveigjanleika til að geta tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi.
5. Vera við góða heilsu andlega og líkamlega og laus við alvarlega námsörðugleika. Lesblinda flokkast ekki sem alvarlegir námsörðugleikar.
6. Vegna covid þurfa skiptinemar að vera fullbólusettir með eftirfarandi bóluefnum: BioNTecPfizer, Moderna, AstraZeneca or Johnson & Johnson
2. februar fyrir skiptinám sem hefst að hausti
31. júlí fyrir skiptinám sem hefst í janúar
hálft skólaár: 1.890.000
Heilt skólaár: 2.290.000
Staðfestingargjald: 150.000 kr. (óendurkræft) er greitt um leið og umsókn er skilað inn. Þá er 50% af eftirstöðvum greitt 15. apríl og lokagreiðsla fyrir 1. júlí.
Hafir þú áhuga á að kanna möguleikann á skiptinámi í Þýskalandi nánar er fyrsta skref að panta viðtal hjá Mundo. Vinsamlegast hafið samband við Nönnu Hlíf í netfangi nannahlif@mundo.is, eða síma 8504684