Frábært tækifæri fyrir unglinga til að upplifa ævintýri á Spáni í sumar, læra nýtt tungumál, kynnast nýrri menningu og eignast nýja spænska og íslenska vini. Vilt þú taka þátt?
Mundo býður 14-16 ára unglingum upp á menntandi sumardvöl í Zafra dagana 24. júní til 15. júlí. Að dvöl lokinni eiga krakkarnir að geta bjargað sé á spænsku og þau sem byggja á grunni ættu að verða talandi á spænsku.
Hugmyndafræðilegur rammi sumarbúðanna byggir á leiðtoganámskeiði þar sem unnið er með ungmennum í nýjum aðstæðum. Krakkarnir vinna með gildin sín, læra að tileinka sér að hafa frumkvæði, skipuleggja fram í tímann, forgangsraða, setja sig í spor annarra, finna góða lausn fyrir báða aðila, vinna vel í hópi og hugsa vel um sig. Allt er þetta tengt við menningarlæsi og það að þurfa að standa á eigin fótum í nýrri menningu.
Vilt þú taka þátt í ógleymanlegu sumarævintýri, öðlast alþjóðlega reynslu, læra spænsku á mettíma og verða leiðtoginn í þínu eigin lífi?
Um sumarbúðirnar:
Sumarbúðir Mundo hafa nú verið starfræktar frá árinu 2012. Það eru engar ýkjur að sumarbúðir Mundo eru flaggskip og stolt ferðaskrifstofunnar og fjöldi þeirra ungmenna sem dvalið hefur í Zafra hleypur nú á hundruðum.
Búðirnar 2024 verða í Zafra í Extremadura sem er 20 þúsund manna bær í 150 kílómetra fjarlægð frá Sevilla. Bærinn er meðal þrjátíu fallegustu þorpa Spánar. Hann er jafnframt lítill og öruggur, hefur flest sem unglingar hafa gaman af en ekki það sem foreldrar óttast.
Farastjóri og leiðbeinandi hópeflis og lífsleikniverkefna er Nanna Hlíf Ingvadóttir starfsmaður MUNDO. Nanna Hlíf hefur kennt öllum aldri, skapandi tónlist og hreyfingu í 25 ár og á kennaranámskeiðum víða um heim.
Nanna mun halda með mjúkri hendi utan um hópinn og leysa þau vandamál sem upp geta komið. Í Zafra er einnig starfsmaður MUNDO, Eva Arenales sem sér um allt utanumhald s.s að finna fjölskyldur við hæfi, skipuleggja ferðir og uppákomur o.fl.
Þátttakendur dvelja á spænskum heimilum þar sem búa ungmenni á svipuðum aldri. Þannig eru íslensku krakkarnir í öruggu umhverfi og í félagsskap spænskra ungmenna, nokkuð sem flýtir fyrir tungumálanáminu og eykur líkurnar á að vináttusambönd myndist fyrir lífstíð. Spænskir foreldrar eru þekktir fyrir að hugsa einstaklega vel um börnin sín og enn betur um annarra manna börn. Spænsku krakkarnir taka fullan þátt í dagskránni og sækja enskunámskeið á meðan íslensku krakkarnir er á spænskunámskeiði. Síðdegis eru spænsku og íslensku krakkarnir saman í skemmtilegri og fjölbreyttri afþreyingu. Alla virka daga munu nemendur stunda spænskunám og leiðtoganámskeið í um fjórar klukkustundir á morgnana. Seinni partinn er svo skipulagt félagsstarf og tómstundir, svo sem íþróttir, sundlaugaferðir, og skoðunarferðir til Sevilla, Mérida og á ströndina.
Kíktu á þetta myndbrot frá sumarbúðunum:
https://www.youtube.com/watch?
Skilyrði fyrir þátttöku:
Að snerta enga vímugjafa né nikótíntengdar afurðir af hvaða tagi sem er. Símanotkun í algeru lágmarki.
Ef krakkar eru til dæmis haldnir miklum kvíða eða tölvufíkn þá treystum við okkur ekki til að vinna með það. Við erum ekki meðferðaraðilar heldur einungis frábær í að eiga við unglinga. Til að geta sótt um í sumarbúðirnar þarf að mæta í viðtal ásamt foreldri þar sem starfsmaður Mundo metur hvort við teljum að ungmennið ráði við að vera í sumarbúðum. Í gegnum árin höfum við lært að það ráða ekki allir við að fara 3 vikur í burtu og því vöndum við valið á krökkunum.
Ferðatilhögun:
Lagt verður af stað til Spánar þann 25. júní og er heimkoma 15. júlí.
Verð: 649.000 kr. Staðfestingargjald 100.000 kr (óendurkræft) greiðist eftir að viðtal hefur farið fram og ungmenni hefur verið boðið að sækja um. Eftirstöðvar greiðist í síðasta lagi 6 vikum fyrir brottför. Unglingar þurfa ekki að hafa með sér annað en lágmarks vasapening.
LJÁÐU UNGLINGNUM Á HEIMILINU VÆNGI Í ÖRUGGU UMHVERFI